Skilmálar
R-Asian ehf. – Reikningsnúmer: 142-26-200080 – Kt. 490519-0680 – VSK númer: 134640
Reikningsviðskipti
Hafi verið samið um annan greiðslumáta en staðgreiðslu eða greiðslur með greiðslukorti sendir Reykjavík Asian út reikning fyrir selda vöru. Gjalddagi reiknings fer eftir viðskiptaskilmálum á milli R-Asian ehf. og viðskiptavina. Dráttarvextir reiknast á reikninga sem greiddir eru eftir eindaga í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu. Við vanskil reikninga reiknast dráttarvextir frá eindaga til greiðsludags.
Ef reikningar eru ekki greiddir 10 dögum eftir eindaga fara kröfurnar sjálfkrafa til Inkasso til innheimtu með tilheyrandi kostnaði. Athugasemdir vegna útgefinna reikninga skulu berast til Reykjavík Asian innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.
Verð
Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda virðisaukaskatt. Verð á netinu geta breyst án fyrirvara.
Greiðslur
Greiða skal fyrir vöru með greiðslukorti í gegnum örugga greiðslusíðu Korta en einnig er hægt að greiða með Netgíró.
Skila- og endurgreiðsluréttur
Enginn skila- og endurgreiðsluréttur er á vörunum. En komi upp galli á vörunum er hvert mál skoðað fyrir sig.
Trúnaður
Kaupanda er heitið fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar eru ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Lög og varnarþing
Skilmála þessa ber að túlka samkvæmt íslenskum lögum. Ef kemur upp ágreiningur milli kaupenda og seljanda vegna skilmála R-Asian ehf., verður málinu vísað til íslenskra dómstóla.